Wednesday, 23 June 2010

ísland.... best í heimi

Hressar í Redgents park á leiðinni á 17 júní hátíð!
Elsku Kristrún mín fór heim í gær!...
ég hefði ekki meikað að kveðja hana ef ég væri ekki að koma heim Á MORGUN!!


Get ekki beðið eftir að koma heim og knúsa allt fólkið mitt!!




Tuesday, 22 June 2010

Music and Lyrics

Ég er í léttu flashbacki núna!.

Þökk sé því að ég signaði mig inn á MSN og sá þar svo hrikalega skemmtilegan status..

Ég er samt að missa mig í gömlum góðum lögum á YouTube. Svona lög sem voru alveg hrikalega mikið "inn" þegar ég var yngri.

Ég verð seint þekkt fyrir það að vera góð í að fara rétt með texta. Iðulega bæti ég inn orðum eða breyti orðunum eftir minni hentusemi, sem sagt hvað mér finnst vera réttast. Ég er aðeins að bæta mig í þessu nú orðið. En það er greinilegt að sem barn og unglingur var ég ekki neitt að spá í þessu. Ekkert að spá í samhengi í lögunum eða neitt þannig.

Þegar ég hlusta á þessi lög þá geri ég mér grein fyrir því hversu vitlaust ég túlkaði lögin, og í leiðinni fæ ég svör við spurningum sem ég velti mér upp úr kannski heil lengi...

Ég vissi heldur aldrei hvað lögin hétu .. bjó bara oft eitthvað til, þá helst var það orð eða setning sem kom oft fyrir í laginu.

En það fyndna er að ég man svona í flestum tilvikum hvernig ég kunni lagið...



Ætla að deila með ykkur aðeins hérna...



Hér er hluti af texta af laginu Pure Shores með All Saints.. og hvernig ég skildi það..

I've crossed the deserts for miles ( Hér áttaði ég mig ekki á því að það var verið að tala um eyðimörk.. bara desert... köku eða ís eða eitthvað!)
Swam water for time
Searching places to find ( Hérna var ég viss um að hún væri að leyta að fólki ekki stöðum)
A piece of something to call mine
(I'm coming) (hérna hélt ég að það væri Im calling)
A piece of something to call mine(I'm coming)(I'm coming)
Coming closer to you
Went along many moors
Walked through many doors
The place where I wanna be
Is the place I can call mine(I'm coming)
Is the place I can call mine(I'm coming)(I'm coming)
Coming closer to you

I'm moving
I'm coming
Can you hear, what I hear
It's calling you my dear
Out of reach
(Take me to my beach) (hér hélt ég virkilega í alvörunni að það væri verið að tala um presta.. ekki strönd... taktu mig til prestsins... thumbs up dagga!)
I can hear it, calling you
I'm coming not drowning
Swimming closer to you

Never been here before
I'm intrigued, (hér bullaði ég alltaf eitthvað orð sem var ekki til)
I'm unsure
I'm searching for more
I've got something thats all mine
I've got something thats all mine
Take me somewhere I can breathe
I've got so much to see
This is where I want to be
In a place I can call mine
In a place I can call mine

Ef ég dett inn á fleiri miskilda gullmola þá hendi ég þeim inn. Alltaf gaman að pæla í svona hlutum! :)

--Dagga

Friday, 18 June 2010

Gleði!!

Elsku besta Strúna sín er hjá mér!
Það er best í heimi!!
Við erum búnar að gera svo margt skemmtilegt!
Versla svoldið..
Drekka bjór...
Borða góðann mat...
Drekka bjór...
Fara í leikhús..
Drekka bjór...
Og bara hafa það óstjórnlega kósý!!


Ekki nema SEX dagar í að ég komi heim!!

Partý partý!!!


--- Dagga ---

Saturday, 12 June 2010

Sumarið er tíminn!

Sæll hvað mig hlakkar til að knúsast með þessum!!
Svo ætla ég líka að chilla með þessum tveim!!



Held að ég taki nokkra rúnta með þessum skvísum!!





Vá hvað ég ætla að fara í sumarbústað í sumar!!!







Ég fæ að sjá þessi tvö í sumar!! hef ekki séð þau síðan um jólin!!









Uppáhalds uppáhöldin mín :)











Mikið hlakkar mig til að eyða sumrinu á Íslandi!!






Ætla sko að gera eitthvað ótrúlega skemmtilegt með þessum píjum!





































Thursday, 10 June 2010

London


London er svo heillandi borg!.. ég er alltaf að sjá eitthvað ótrúlega fallegt þar.
Kem með nokkur dæmi svona öðru hvoru... En þessar 3 myndir sem eru hérna eru uppáhalds london myndirnar mínar, sem ég hef tekið allavega... :)




Wednesday, 9 June 2010

Fyrsta bloggið!


Ég hef ákveðið að byrja að blogga hérna.

Síðan ég flutti til London hef ég rosalega mikið verið að lesa allskyns skemmtilegar bloggsíður. Og það virðist vera rosa gaman að gera svona bloggsíður, setja inn allskonar myndir og annað skemmtilegt, þannig ég ákvað að vera hermikráka og gera það líka :)

Annars koma held ég bara svona blogg um hitt og þetta... aðalega hitt.. kannski eitthvað um þetta....
Ég læt fylgja hérna mynd af Nelsoni félaga mínum flotahöfðingja. Hann er alltaf svalur kallinn..
Jæja, vonandi líst ykkur vel á þessa nýju hugmynd mína og vonandi verð ég alveg ofsalega dugleg að fylgja þessari nýju hugmynd minni eftir. :)
xx
Dagga