Friday, 29 October 2010

Sambýlingurinn og holdsveikin



Það er eins og ég sé holdsveik.


Reyndar eru eins og allir sem ég er með núna séu holdsveikir. Ætli fólk horfi á okkur þegar við löbbum um göturnar og hugsi, ÆJÆJ... greyjið þau, einn hefur fengið holdsveiki og allir hinir hafa ákveðið að vera með svo þessum eina liði ekki illa.


Málið er samt að við erum ekkert holdsveik. Við erum bara fórnalömb hinna illu móskítóflugna. Hendurnar á mér eru eins og ég sé komin með hlaupabóluna. Fæturnir á mér eru svipaðir. Sem betur fer hefur andlitið sloppið ennþá, og afþví ég sagði þetta vakna ég mjög líklega eins og fílamaðurinn á morgun.


Fyrir þremur kvöldum fékk ég sambýling í hótelherbergið mitt. Það kvöld var ég veik og kolrugluð, þar sem ég var alltaf að sofna og vakna, sofna og vakna. Ég hélt ég væri komin með háan hita og óráð þegar ég heyrði í þessum sambýling mínum. Mér fannst hann vera í eyranu á mér og hugsaði "okei nú þarf jafnvel að fara að detta inn á spítala með þig". Ég kveikti ljósið og sat í rúmin mínu eins og geðsjúklingur og sló frá mér út í loftið. Ég var að reyna að slá hljóðið í burtu. Eftir smá stund játaði ég mig sigraða og fór aftur að sofa með hljóðið í eyrunum, sláandi frá mér öðru hvoru.


Morgunin eftir fór ég að rifja upp nóttina, sem er basic hjá mér, vakna alltaf og byrja á því að rifja upp atburði liðina nætur, og datt þá í hug að það gæti hugsanlega, mögulega hafa verið fluga inni hjá mér. Datt mér það í hug um nóttina þegar ég hélt að ég væri líklegast að fá eitt heilaæxlið enn? Nei... að sjálfsögðu ekki.


Þegar ég er að klæða mig í fötin og drösla mér framm, sé ég þá ekki eina pínu litla flugu með læti á við sjö fljúga í sakleisi sínu fyrir ofan lampann minn.


Þarna brakaði í höfðinu á mér og kviknaði ljós í heilanum. Þetta var þá öll geðveikin. Pínulítil suðandi fluga.


Ég held ég sé nánast viss um að það sé semsagt nýja sambýling mínum að "þakka" að ég líti út eins og lítið barn með hlaupabólu, eða gamall kall með holdsveiki.


Þessi ágæti sambýlingur, sem ég ætti þó að fara að gefa nafn sem er þjálla í máli heldur en sambýlingur, er ennþá hjá mér. Hann vill ekki fara þó svo að ég hafi bæði beðið hann fallega og hótað öllu illu. Ég reyndi líka að drepa hann!....

Wednesday, 20 October 2010

I WANT MUCH!


Það er óramarg sem mig langar alveg hrikalega í þessa dagana.... ákvað að koma með smá lista ef fólk fyllist þeirri þörf að gefa mér eitthvað ....

Fyrst og fremst langar mig í íbúð .... Hún mætti alveg vera með svona rauðu þema líka. Ég elska rauðan!...


Það er ógeðslega kallt í London!... Svo er ég að fara að koma heim til Íslands og þar er örugglega ennþá kaldara... og ég á alveg hrikalega slæma úlpu. Það er ALLT slæmt við hana, hún er ekki hlý, hún er orðin of stór, hún er FÁRÓNLEGA ljót og já, það er bara allt að henni.

Þessi myndavél er jafnvel bara to die for!... Canon EOS 50D. Ég gæti tekið ógeðslega mikið af fallegum myndum og þar af leiðandi yrði bloggið jafnvel milljón sinnum skemmtilegra, og þá myndi ég líka kannski bara bloggar oftar.... Þessi myndavél... Já Takk

Mig langar í miklu miklu meira....
En maður má ekki vera of kröfuharður...

xxx
DaGGa