Wednesday, 21 July 2010

Smá blogg!

Okei sæll hvað ég er búin að vera léleg að blogga!...
En þegar maður er á Íslandi þá bara hefur maður svo lítinn tíma!...
Séstaklega þar sem veðrið er búið að vera alveg hreint dásamlegt!.
Þvílíkur lúxus sem er búin að vera á mér hérna síðan ég kom heim, það er bara grill eftir grill bæði með famelí og vinum, búin að fara 2x í sumó og eina "semí" útilegu... (tók samt ekki alveg útileguna á þetta ... heldur var í útilegu allann daginn og fór svo í Hveró til tengdó og gisti þar :) )

Síðustu helgi var svo sumarkokteilastelpu kvöld, sem var A W E S O M E !!! Alveg elska ég að hitta stelpurnar mínar! og ekki spillir góða veðrið fyrir! Sátum út á palli fram eftir nóttu svei mér þá!.. Og undur og stórmerki gerast enn... en ég skellti mér meira að segja niðrí bæ með skvísunum!. Og til að sanna það hversu geðveikt veður var þá var ég á stuttermakjól! í engum jakka eða gollu!. Spáiði!.. Það lá við að maður þyrfti sólgleraugu bara þegar maður var að fara heim.. sólin var bara komin aftur!
Alveg Elska ég íslenskar sumarnætur!!

Ég lenti samt í þvílíkt fyndnu atviki á leiðinni heim úr bænum. Ég var svo gáfuð að taka leigubíl (note to your self: farðu bara á bíl næst þegar þú ferð í bæjinn!!) ... ég og leigubílstjórinn tókum svona létt spjall á leiðinni og það barst í tal að ég byggi í London. Hann spyr mig hvað ég starfa við það og ég segji honum að ég sé svona Nanny. . . "jáhá".. segir hann.. "Það er sko skemmtilegur þáttur! þá hlítur að vera gaman, hef nokkrum sinnum séð þetta í Sjónvarpinu" .... þá bara hló ég, borgaði, brosti og fór heim að sofa... hahah þetta var fyndið!...

... En jæja, smá update!.. :) var að reyna að skella inn nokkrum myndum en það tókst ekki! hefur örugglega eitthvað að gera með þessa glæsilegu nettenginu sem við erum með!...

2 comments:

  1. Haha ég var alveg búin að gefa upp vonina um blogg á meðan þú værir á Íslandi!! en jeyy :) Gaman að sjá að þú sért að njóta sumarsins skvís, þannig á það að vera :D

    - SiljaM

    ReplyDelete